30.3.2007 | 12:28
Til hamingju Vaka
Vil óska Vöku til hamingju með mjög vel heppnað málþing í gær, komst reyndar ekki sjálfur en að sögn var mætingin mjög góð og skemmtilegar umræður mynduðust. Athyglisvert að Björgvin G. Sigurðsson frá Samfylkingunni hafi forfallast á síðustu stundu. Spurning hvort hann hafi ekki þorað að svara því hvort hann væri fylgjandi skólagjöldum, sem hann hefur áður gefið út. Það hefði líklega farið í illa í yfirlýsta stuðningsmenn Samfylkingarinnar innan Röskvu. Þetta skólagjaldamóment Samfylkingarinnar og hversu vandræðalegir Röskvuliðar verða í tengslum við það sýnir að mínu mati svart á hvítu af hverju fólk í stúdentapólitíkinni eigi ekki að vera á sama tíma í trúnaðarstörfum eða yfirlýst stuðningsfólk flokka í landsmálapólitíkinni. Það geta augljóslega skapast hagsmunaárekstrar. Nú eiga eflaust einhverjir Röskvuliðar eftir að koma með athugasemd við þessa færslu og benda á að margir Vökuliðar séu Sjálfstæðismenn. Það er hins vegar stór munur á því að hafa skoðanir á landspólitíkinni, sem flest hugsandi fólk eðlilega hefur, eða gegna ábyrgðarstöðum fyrir stjórnmálaflokk á sama tíma og fólk gegnir ábyrgðarstöðum innan Röskvu. Þarna er stór munur á Vöku og Röskvu. Virðist líka einnig að það sama eigi við um Samfylkinguna og Röskvu (enda mikið af sama fólkinu), popúlískir flokkar þar sem skoðanirnar þeirra á hinum ýmsu málum sveiflast oft til eins og strá í vindi.
Verður gaman að sjá viðbrögðin við þessari færslu, eitthvað segir mér að reynt verði að malda í móinn. Þó alltaf erfitt að verjast sannleikanum.
Um bloggið
Andri Heiðar Kristinsson
Tenglar
Ýmsar vefsíður
Hér getur að líta ýmsar vefsíður sem ég mæli með...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
godsamskipti
-
andres
-
arnih
-
astamoller
-
borgar
-
doggpals
-
ekg
-
einsidan
-
elinora
-
emils
-
erla
-
erlaosk
-
eyrun
-
ea
-
grazyna
-
gudbergur
-
gudfinna
-
hannesgi
-
heidamaria
-
helgahaarde
-
herdis
-
ingolfur
-
johannalfred
-
jonthorolafsson
-
kolbrunb
-
kristinhrefna
-
kristinmaria
-
magginn
-
maggaelin
-
mariagudjons
-
olofnordal
-
reynir
-
advocatus-diaboli
-
siggisig
-
stefaniasig
-
svansson
-
tomasha
-
vakafls
-
vilby
-
vkb
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.