Líf og fjör hjá Innovit

Það hefur verið líf og fjör hjá Innovit síðustu vikuna, enda eru fyrstu sprotafyrirtækin nú farin á fullt og því fjölmenni á skrifstofum Innovit á hverjum degi. Í dag kom síðan Magnús Már, verkefnisstjóri, aftur til starfa eftir útskriftarferð með véla- og iðnaðarverkfræðinemum til Þýskalands og Tælands. Frábært að fá Magga aftur til baka því verkefnin hafa hlaðist upp undanfarið og stefnir í mjög annasama tíma framundan hjá okkur. Mjög góðar fréttir bárust okkur í lok síðustu viku, en þá bættist við stór meginbakhjarl Innovit. Við munum þó að öllum líkindum bíða með að tilkynna um bakhjarla okkar til haustsins, eða þegar gengið hefur verið formlega frá samningum við alla aðila.

Í þessari viku er það helst á dagskránni að á morgun munum við Maggi sækja daglangt námskeið um umsóknir lítilla og meðalstórra fyrirtækja í 7. rammaáætlun ESB en það er mjög mikilvægt fyrir okkur að vera vel inni þeim málum, bæði fyrir Innovit, sem og varðandi ráðgjöf fyrir sprotafyrirtæki sem við aðstoðum. Miðvikudagurinn mun síðan að mestu fara í ráðstefnu á vegum Norrænu nýköpunarmiðstöðvarinnar sem staðsett er í Oslo, en fulltrúar hennar verða staddir hér á landi í vikunni. Í lok vikunnar er stefnan loks sett á að hefja af krafti undirbúning viðamikillar árlegrar keppni í gerð viðskiptaáætlana sem verður kynnt í haust og mun fyrsta keppnin fara fram í byrjun árs 2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Andri Heiðar Kristinsson

Andri bloggar....

Andri Heiðar Kristinsson
Andri Heiðar Kristinsson

Ég, hugsjónir mínar og pælingar um allt og ekkert...

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband